Picture

Snjallt og öruggt umsjónarkerfi fyrir gæludýr

  • Með stafrænu gæludýra umsjónarkerfi minnkar pappírsvinnan
  • Kerfið dregur úr launakostnaði sveitarfélaga með minni þörf fyrir handvirka vinnu.
  • QR-kóði í hálsól gæludýra auðveldar að finna eigendur týndra dýra og eykur öryggi.
  • Kerfið stuðlar að aukinni skráningu gæludýra.

Snjöll og einföld leið til að halda utan um gæludýrið þitt

  • Skráning og uppfærsla upplýsinga á nokkrum sekúndum 
  • QR-merki sem eykur öryggi og auðveldar að finna eiganda 
  • Sjálfvirkar áminningar um skráningu, gjöld og mikilvæga þjónustu 
  • Öll gögn, gjöld og þjónusta á einum stað 

Fyrir dýralækna

  • Betri samvinna:
    Dýralæknar og sveitarfélög geta unnið saman á skilvirkan hátt með miðlægu kerfi, þar sem allar upplýsingar eru aðgengilegar og samræmdar.
  • Sparar tíma og eykur skilvirkni:
    Dýralæknar sem starfa fyrir sveitarfélög geta nýtt sér aðgengi að kerfinu til að fá hraðari og nákvæmari upplýsingar um gæludýr, sem sparar tíma og gerir þjónustuna skilvirkari.
  • Aðgangur að gögnum í rauntíma
    Dýralæknar hafa aðgang að öllum skráðum gæludýrum í sveitarfélaginu, þar á meðal heilsufarsskrám, bólusetningum og öðrum mikilvægum upplýsingum, sem auðveldar eftirlit og meðhöndlun.
  • Markviss þjónusta:
    Með aðgangi að nákvæmum upplýsingum um gæludýrin geta dýralæknar veitt betur sérsniðna þjónustu og ráðgjöf, byggða á einstaklingsbundnum þörfum hvers dýrs.

Ávinningur fyrir sveitarfélög

Aukin skráning gæludýra 

Með einföldu og notendavænu umsjónarkerfi hvetjum við fleiri eigendur til að skrá gæludýr sín. Það skapar betri yfirsýn, eykur öryggi og bætir þjónustu sveitarfélaga. 


Sjálfvirkar áminningar til eigenda um stöðu gæludýragjalda og annarra mikilvægra upplýsinga tryggja að eigendur fylgi reglum sveitarfélagsins um gæludýrahald. 

Bætt heilsa og öryggi gæludýra 

Með fleiri skráningum gæludýra tryggjum við að gæludýr fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu til að draga úr mögulegri útbreiðslu sjúkdóma.


Nákvæm skráning á heilsu og bólusetningum gæludýra bætir heilsu samfélagsins almennt. 

Betri og nákvæmari upplýsingar

Nákvæm skráning gæludýra gefur sveitarfélögum mikilvæga yfirsýn sem auðveldar áætlanagerð og úthlutun þjónustu, svo sem dýraeftirliti og dýralæknaþjónustu.


Vitneskja um fjölda og dreifingu gæludýra gerir sveitarfélögum kleift að veita markvissa þjónustu og bregðast hratt og skilvirkt við málum, eins og flækingsdýrum. 

Aukin ábyrgð og gegnsæi 

Kerfið tryggir gegnsætt eftirlit með skráningu gæludýra, heilsufarsskrám og gjaldtöku, sem eykur traust og ábyrgð milli sveitarfélaga og gæludýraeigenda. 


Nákvæm skráning gerir endurskoðun auðveldari og tryggir að fjármagn úr gæludýragjöldum nýtist á skilvirkan hátt í þjónustu sveitarfélagsins. 

Image man on couch

Skráðu þig á póstlistann

Skráðu netfangið þitt hér að neðan.

Með því að gerast áskrifandi samþykkir þú persónuverndarstefnu Icepets